Ég bakaðiflatkökurnar (1191. og 1192.) ekki sjálf en ég mæli með þeim undir hamarann. Mér finnst keypt hamborgarbrauð jafnslæmt og keyt pyslubrauð, ég get virkilega ekki borðað þetta, fær í magann og allt. En þar sem ég er svo mikill bakari eigum við nú oftast eitthvað kringlótt sem hætt er að fá sér með. Í gær datt mér í hug að prófa ramm íslenskan hamara, með flatköku, buffi, íslensku káli og öllu tilheyrandi meðlæti eins og rauðar kartöflur (529.)
Sem fróðleikur má einnig segja frá því að ég hef fundið upp á íslenska ostaköku (low in carbs): 1 flatkaka er smyrt frjálslega með 1 – 2 msk af rjómaosti. Uppáhaldssultan (bláber) er slétt yfir og namm namm namm. Góða helgi!

