155. Lambakjöt

Fyrsta flokks lambakjöt vegur 12 1/2 kg. og þar yfir.Við keyptum skrokk í haust og erum búin að nota mikiðaf kjötitil að elda alls konar mat og Hjalti bjó einnig til kæfu. Um daginn elduðum við mjög góða kjötsúpu. Mér finnst mjög gott að fá mér súpu, það er eitthvað svo róandi og lætur manni liður vel. Það er ekkert mál að búa til góða kjötsúpu.

Published in: on febrúar 7, 2010 at 6:52 pm  Ummæli (1)  

http://www.beintfrabyli.is/

Fórum í Kolaportið um daginn og keyptum reykt hrossakjöt og einnig kindabjúgu. Hjalti bjó til uppstúf og ég eldaði kartöflur.

Published in: on febrúar 7, 2010 at 6:39 pm  Rita ummæli  

nei, ég er ekki grænmetisæta og jú, ég borða nammi

Published in: on janúar 24, 2010 at 12:03 pm  Rita ummæli  

Að breyta uppskriftum

Þó að ég ætla að reyna að elda allar uppskriftir eins og þær eru í bókinni finnst mér allt í lagi að breyta aðeins til þar sem margar grænmetis og ávaxtategundir hafa ekki verið til þegar bókin var skrifuð. Ég bjó til plokkfisk (340.) um daginn en notaði sætar kartöflur í staðinn vejulegra og kom það bara mjög vel út.

Um kartöflur (521.) er fróðlegt að lesa að Íslendinar borða miklu minna af kartöflum en aðrar þjóðir  og að við ættum að “stórauka hina daglegu neydzlu kartaflanna alls staðar á landinu, jafnt til sjávar og sveita.”

Published in: on janúar 24, 2010 at 11:54 am  Rita ummæli  

Um sósur (427.)

Ég hef ekki verið mikil sósumanneskja og notar ennþá helst bara tómatsósu eða gott sinnep. Og sojasósu. Ég er samt búin að læra að elda sósur alveg frá grunni og finnst mér það vera fín tilbreyting. Helga talar um aðferðir í sósugerðinni:

  1. blanda saman mjólk og hveiti (jafningur)
  2. hræra smjör í skál, bæta hveiti við oog láta því út í sóðið
  3. bræða smjör í potti , hræra hveiti saman við og þynna því út
  4. brúna smjör og hveiti saman í potti og þýnna út

Ég bjó til gúrkusósu um daginn sem mér þótti góð með hrísgrjónum eða byggi og fiskréttum.  Hún var kekkjulaus, sem betur fer þar sem dæmi mætti matreiðslukunnattu konurnar  eftir því, hvort hún geti búið til bragðgóða og kekkjulausa sósu.

Published in: on janúar 24, 2010 at 11:11 am  Rita ummæli  

afmæli

Jörvi átti afmæli á sunnudaginn. Við fengum hann 10. janúar, þá 3 ára en við höldum upp á 4 ára afmælið hans með prompi og prakti þann dag þó að hann er aðeins eldri. Þetta var samt flottur dagur, svafum út, fórum í ræktina og í bíó og fengum okkur afmælisköku, Kaffikaka ((1099.)

Ég er að komast að því að uppskriftirnar hljómar stundum svolítið undarlegar og eru stundum svo einfaldar að þær eru orðnar floknar á ný. Kaffikakan leit nú ekki sérstaklega vel út en hún var mjög góð. Ég ætla að nota appelsínugljáa eða jafnvel vanillukrem (1043.) næst.

Önnur uppskrift sem hljómar einföld og ég er orðin spennt fyrir er Hvítkáls-kjötbúningur (228.) en ég notaði hakk í staðinn fyrir að “saxa kjötið 4 – 6 sinnum” og sétti einnig pipar og chili. Krydd var víst ekki mikið notað í gamla daga en ég hef mjög gaman að leika mér með alls konar kryddblöndum og hlakka til að fara að rækta nokkra kryddjurtur í gluggakistunni um leið og það fer að birta aðeins meira.

Published in: on janúar 13, 2010 at 7:04 pm  Rita ummæli  

nýtt met

Í gær eftir vinnu fór ég í sund. Ég syndi yfirleitt 1500m og allt sem fer yfir það er bónus en oftast fer ég á morgnanna og er þá tímabundið og lendi einhversstaðar milli 1500 og 2000m. Um helgar hef ég stundum farið með Hjalta og oftast synd 2200m sem er alveg ágætt. Maður verður nú að standa sig þegar karlinn er að flugsynda fram hjá manni :-)

Mér gekk vel að synda í gær, eftir 1500m var ég viss um að ég gæti þetta alveg, tók mér pissuhlé eftir 2000m og 500m í viðbót eftir það. Eimbaðið eftir æfinguna var alveg dásamlegt.

Um kvöldið fékk ég mér skyrboost og seinna fórum við í bæinn og ég fékk mér eitt gott rauðvínsglas á Hemma og Valda. Lífið er alveg yndíslegt þessa dagana, hjónin bara að njóta tilveruna í botn. Þetta ár er alveg að meika það hjá mér.

Ég er búin að vera að elda eitthvað úr bókinni á hverjum degi eiginlega, margar réttir eru frékar einfaldar enda er bókin óbreytt síðan 1954, mamma mín rétt að fara að byrja í grunnskóla.

Published in: on janúar 9, 2010 at 10:49 pm  Rita ummæli  

Þréttandi

Þá eru jólin búin. Ég er alveg að klára að pakka þeim niður en ég ætla að hafa eina seríu í glugganum, jólasnjórinn er að bráðna eins tímalega og hann kom. Mig langar ekki í myrkið, bara alls ekki.

Hér kemur bráðskemmtileg mynd af uppáhaldsuppskriftinni minni hingað til.

Published in: on janúar 6, 2010 at 5:50 pm  Rita ummæli  

Fyrsti vinnudagur eftir jólafríi

Ég vann reyndar eitthvað pínu smá inn á milli en í dag var samt svona almennilegur dagur í vinnunni og gekk bara vel. Veðrið er búið að vera alveg geggjað og ég nýt þess mikið að vera úti. Lærði í dag að bófar eru vondir karlar sem fara í risaeðlubúning og reyna að plata okkur. Ég trúi að ég á eftir að komast heil gegnum árið með þessari staðreynd í huga. Alla vegna brosandi og það er fyrir öllu.

Ísskápurinn er ennþá fullur af leifum  og góðgæti. Nammi namm. Ég vona samt að ég get farið að elda eitthvað af viti bráðlega.

Published in: on janúar 4, 2010 at 9:11 pm  Rita ummæli  

Af hverju ættir maður að byrja á morgun ef maður getur byrjað í dag

Ég henti mér út í, nei, Hjalti sparkaði mér út í  djúpu laugina í dag. Ísskápurinn er fullur af leifum eftir áramótaveislunni hér heima og það er mikið sunnudagur í mér. Ég er hrædd við að setja mér markmið af því að ég á það til að sökka um leið og ég er komin í svíðsljósið. Pressa er ekki mitt. En ég ætla að byrja og ég ákvað að gera það strax. Hjalti sétti síðuna af stað á meðan ég hrærði í smjörinu og skar rúgbrauð.

Published in: on janúar 3, 2010 at 8:07 pm  Ummæli (1)  
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.